Logar á Kringukránni helgina 31 okt og 1 november

_MG_1300  c_users_gribo_pictures_olympus_master_2_2000_01_01_mg_1291.jpg  _MG_1292  _MG_1294 

Á þessum myndum eru kapparnir í góðri sveiflu á þjóðhátíð.

 

Næstu helgi munu gömlu kempurnar í hinni langlífu hljómsveit Logar koma saman á Kringlukránni  í Reykjavík og skemmta gestum kráarinnar.  Það er gaman að segja frá því að á næsta ári 2009 munu Logar fagna 45 ára afmæli hljómsveitarinnar.  Verður það að teljast langur líftími hljómsveitar ?  Líklega elsta starfandi hljómsveit þessa lands.  Margir munu sjálfsagt spyrja „á ekki að gera eitthvað á svona stórum tímamótum?“  Reynslan hefur kennt að best er að vera ekki með stórar yfirlýsingar, en vissulega væri þetta verðugt tilefni.  Svo það er aldrei að vita ?

Það hefur alltaf verið verulega góð mæting er Logar hafa spilað á kránni og verður sjálfsagt engin breyting á því þessa helgi ?

Mér barst í hendur texti úr Hólminum um daginn frá Ægi Jóhannssyni við lagið „Proud Mary“ frá C.C.R.  og leyfi ég mér að birta hann hér

Logar. 

Lag:  Proud Mary  (John Fogerty)  

Ég er fæddur útí eyjum 

ungur fór ég oft á þjóðhátíð 

Í Herjólfsdalnum dvaldi í innréttuðu tjaldi 

Brekkusöngva kyrjaði uppí hlíð 

Við bálið á Fjósakletti 

Hljómsveit úr klaufum sletti. 

Logar, logar, í dalnum léku logar  

Var ég af værum blundi  vakinn upp um kalda vetrarnótt 

Birta yfir bænum,Bjarmi yfir sænum 

Út um gluggann starði, var ekki rótt 

Fiðring mig ennþá fæ um 

Austur á Kirkjubæjum 

Logar,  logar,  við himin léku logar.  

Komið hef ég aldrei aftur 

Þar sem æskuglaður dvaldi ég eina tíð. 

En oft í draumum mínum á sumardegi fínum 

Um Heimagötu geng ég og Grænuhlíð 

Vakna ég enn um nætur 

því inni við hjartarætur 

Logar,  logar,  en þá leika logar.   

Logar, logar, í dalnum léku logar 

Logar,  logar,  við himin léku logar. 

Logar,  logar,  en þá leika logar.   

Ægir Jóhannsson.  2004. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband